Vantaði hann verkefni?

Þetta er undarlegt mál, vonandi upplýsist það sem fyrst.   Mikill sjúkleiki þeirra sem eiga í hlut, sama í hvaða starfi  þeir sinna fyrir.
mbl.is Slökkviliðsmaður grunaður um íkveikjuna í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nógu kokglaður í fjölmiðlum.

Hvað var þetta fólk eiginlega að hugsa sem stjórnaði fyrirtækjum og bönkum um annað en völd og græðgi? Skuldirnar sem fólk kom sér í með því að taka lán hlýtur að eiga að borga þær til baka eins og allir sem taka lán. Okkur landanum er ekki sýnd nein miskunn, ef skuldin er ekki greidd. Ég vona að þeir sem fóru langt fram úr öllu sem heitir hóf, verði ekki sýnd nein miskunn heldur.

Svo spyr maður líka hvernig gat það gerst að sömu aðilarnir ættu Banka, tryggingarfélög, og dótturfélög hægri vinstri án þess að eftirlitið segi eitt einasta orð? Þetta er mér alveg hulið.

 


mbl.is 200 milljóna veð í sveitasetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fóru ekki baksjóðirnir á markað?

Voru ekki allir sparisjóðir SPRON settir á markað á tímum græðisvæðingar?  Ég heyrði á þeim tíma Pétur nokkurn Blöndal tala um að þetta væru sjóðir sem engir ættu og þá ætti að setja á markaðinn. Þessir sjóðir voru auðvitað baksjóðir SPRON eins og hugsað var í upphafi sparisjóðavæðingar á sínum tíma, og trúlega fall þeirra núna.
mbl.is SPRON-sjóðurinn tapaði en lifir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð tillaga..

Mér finnst þessi tillaga áhugaverð, og kannski til þess að ekki sé hægt að skjóta sér undan ábyrgð  eftir á.. Nafna mín hefur sýnt sig að undanförnu trausta og ábyrga skoðunum sínum, þannig að ég styð þessa hugmynd hennar heilshugar.  Þessi kona kunni að axla ábyrgð sem stjórnarmaður seðlabankans og sagði af sér í kjölfar hruns. Þannig að hún hlýtur að setja þessa hugmynd sína fram undir ábyrgð, og þar að leiðandi að setja framar ábyrgð á þá sem verða ráðnir til starfans.. en launakröfur þeirra.. sem aðalatriði... eins og virðist hafa verið áður í skjóli sjálfstæðismanna.. 


mbl.is Eitt ráðuneyti efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svikin loforð..

Hvað gerist alltaf þegar flokkar mynda ríkisstjórn?

Getur verið að það sé svona merkilegt að komast í ríkisstjórn að allt annað víki sem virkilega skiptir máli fyrir þjóðina? Öll loforð á bak og burt, stóru orðin horfin út í buskan.. Ég er farin að hallast að þessu. Stjórnarandstaðan stendur æpandi á hliðarlínunni og fordæmir allt sem gert er  af stjórninni sjálfri, sama hvaða flokkar það eru.  En haga sér samt eins og þeir sem fyrir voru. Er það kannski gert til að fela gjörninga stjórnar sem spilar  sér í hag í  hverjum leik sem tefldur er. Mér sýnist allir ganga í sömu gildruna ár eftir ár, áratug eftir áratug.  Þeim væri nær að hjálpast að við að fylgja skyldu sinni og passa upp á lög og reglur, því þar virðist vera mjög ábóta vant, svo ekki sé meira sagt. Satt best að segja er ég hætt að treysta fólki  sem bíður sig fram, og allra síst þeim sem sem hafa æpt og hljóðað á hliðarlínunni undan farin ár og snúast svo á hæl hugsana sinna þegar í stjórnina er komið.  Ég hef oft spurt mig að því hvort það fylgi alþingismönnum sú kvöð að ganga í gegnum námskeið í lygum áður en þeir taka við sprotanum..  Því í gegnum árin gera stjórnarmenn lítið annað er segja ósatt.

 


mbl.is Átti að gera skýrari kröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskoðum lyfjagjafir..

Lyf eru ekki lausn á neinum vanda að mínu mati.  Lyf eiga að vera hjálpartæki í einhvern smá tíma á meðan að lausn er fundinn á vanlíðan, og svo að vinna með hana á veraldlegum grunni. Það er allt of oft sem einhverskonar greining fer fram á börnum og þau eru jafnvel hrædd og upptrekt á meðan á greiningu stendur, vegna þess að þeim er ekki sagt að einhver ókunnugur ætli að spyrja hann spurninga sem hann eigi að svara, og foreldrarnir bíði frami á meðan. Svona fór fyrri einu af barnabörnum mínum.  Foreldrarnir vissu ekki fyrr en greiningin var búin, greining  sem þau vissu að stóð til að gera. Þau fengu ekki að útskýra fyrir barninu hvað stæði til, og fóru fram á aðra greiningu í kjölfarið en því var synjað..  Þetta barn er búið að vera á lyfjum síðan, því foreldrunum var sagt að hann þyrfti þess með. Þau treystu læknunum. Núna fimm árum seinna líður þessu barni skelfilega, hann er alltaf fullur af ótta, hann er með stimpill frá kerfinu.  Ég spyr? hvernig á barni að líða vel þegar það finnur svo auðveldlega að það er undir pressu og fær skammir fyrir allt sem hann gerir. Það eru allir á verði í kringum einstaklingin. Hann er aldrei nógu góður. Af hverju mega einstaklingar ekki hafa sinn karakter, og njóta sín án lyfja.. Fyrir stuttu fór  móðirin að skoða skammtana og minka lyfin, og viti menn drengurinn róaðist, og líður mun betur, en þessi lyf verða vanabindandi líkamanum, þannig að það eru átök fyrir litla kroppa að hreinsa líkamann af eitrinu.
mbl.is Mikill kynjamunur á lyfjatöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Birkir Jón!

Höskuldur hefur ekki breyst í þröskuld í þessari kosningu fyrir Birki Jóni .. Þið verðið konulausir á toppnum. Tæplega komist þið þrjú á þing úr norðausturkjördæmi..

Gangi ykkur vel..


mbl.is Fann fyrir víðtækum stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að fæðast.

Lofar góðu.. Tryggva tel ég vera ábyrgan mann. Vona að hann haldi öðru sætinu út talninguna.  Var að vona að Soffía næði hærra sæti, ég meina lægri tölu..
mbl.is Tryggvi Þór í öðru sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafna mín Ingibjörg hástökkvarinn.

Til hamingju samfylkingarfólk, hér er mikil endurnýjun..
mbl.is Ásta Ragnheiður í 8. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna kann sig, enda topp kona..

Það var naumast að stíflan hennar Jóhönnu barst.. Hennar tími er svo sannarlega komin.  Hún er einstök kona sem  þarf að klóna á allra næstu dögum svo hún verði ráðandi til framtíðar.. Hún er kona.. kletturinn í hafinu, hreinlind og fylgin sér..Hún kann líka að biðjast afsökunar fyrir hönd stjórnvalda sem sýnir mikið.  Það er meira en margur hefur gert.  Það kostað ekkert að biðjast afsökunar sama hvar það er.  Jóhanna er töff, og hefur alltaf verið það..Hún er kona réttlætis, kona jöfnunar, kona sem hefur tilfinningar.  Hún veit að við förum úr jarðlífinu svipað og við komum. Við komum  nakin en förum fáklædd. Við erum aðeins  sál sem er að þroska sig með jarðlífinu..  Þess vegna skiptir máli hvernig komið er fram við einstaklinga.  Núna fyrst er hún metin. Enda kona sem ber að virða. Það  hefði verið ráð að hennar tími kæmi fyrr, því ég  er nokkuð viss um það þjóðin stæði ekki í eins  þungum sporum í dag ef svo hefði verið.. Ljós og kærleikur til hennar, og þjóðarinnar..við megum ekki missa hana af stóli núna.
mbl.is Afsökunarbeiðni vegna Breiðavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband