Flott Sigurjón!

Til hamingju með árangurinn.. Nú er að komast alla leið..
mbl.is Sigurjón náði 2. sætinu hjá Frjálslyndum í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slóðir þeirra liggja greinilega víða..

Það er gott að það finnast gögn yfir þessar færslur.  Vonandi nást þessir peningar til baka..

Svo er að halda áfram og kanna fleiri banka,  hvert þeirra slóð liggur...

Kannski er til fleiri eyjur í hafinu sem  halda utan um þá?


mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er bara rökrétt, ekkert öðru vísi.

það hefði betur verið tekið mark á skýrslum Stefáns á undanförnum árum.  Þá var snúið út úr öllu sem hann sagði  af stjórnvöldum og hluta af almenningi.

Hann vill réttlæti ...það vill almenningur líka..


mbl.is Hækki skatta og tvöfaldi vaxtabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi hún það svo.. jahá.

Er hún að viðurkenna það fyrst núna.. og ætlar ekki að æxla ábyrgð með því að taka sér hlé frá stjórnmálum..Pinch Er það nú...FrownHvernig eigum við að geta treyst fólki sem vill fara aftur á þing og vinna fyrir þjóðina þau vandasömu störf sem nú liggja fyrir.. ef þetta er reynist satt..

Það uppsker hver eins og hann sáir er sagt einhversstaðar Ingibjörg. Ég var að vona að þú hættir þín vegna. Þannig sínir fólk öðrum virðingu, þegar það hefur misstigið sig..


mbl.is IMF varaði við í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun vaxta já takk!

Vonandi er það rétt. Enda  komin tími til að sjá verkin tala. Undarlegast finnst mér þó  hvernig þjóðin snýst til varnar öllu sem gert er. Um leið og óskir fólksins urðu að veruleika og fyrsti  erlendi sérfræðingurinn kom  til að vinna að viðsnúning í fjármálakerfinu hér heima, þá er það rifið niður alveg  um leið.  Við erum skrítin þjóð. Stöndum ekki með okkur einn einasta dag.
mbl.is Vextir fara að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölhæf kona...

Það hlýtur að hafa verið  karlmaður sem sagði til hennar og karlkynslögregluþjón sem tók hana. Því.. Það er nefnilega alltaf sagt að karlar geti  bara gert eitt í einu. Blush
mbl.is Ók bíl, gaf barni brjóst og talaði í síma á meðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað tekur svo við?....

Eigum við ekki að senda þessum mönnum ljós  í hjarta eftir allt skammdegið að undan förnu. Ég vildi ekki vera í þeirra sporum, nema að sjá ljósglætu  framundan..

Blessun fylgi þeim í framtíðinni, og landsmönnum öllum.


mbl.is Seðlabankastjórar kvöddu starfsfólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju! þú er brautryðjandi kona góð..

Frábært hjá nöfnu minni. Til hamingju..Það ætti kannski að setja þetta einmitt í lög, svo kjósendur þekki eitthvað fjármála bakgrunn þeirra sem vilja inn á þing, og í ríkisstofnanir.  

Allan  feluleik í burtu.  (Sennilega verður það seint þannig því miður.)

 Við sáum nú aumingja manninn sem tók að sér að vera stjórnarformaður Nýja Kaupþings.  Hann var ráðin þó að það hefði verið afskrifaður 1 miljarður eða svo af skuldum hans í kringum hrun bankana. Steingrímur virtist ekkert vita. Það vantar einmitt svona kjarnakonu sem til að brjóta blað til framtíðar.


mbl.is Birtir fjárráð sín á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta kölluð fagmennska?

Er þetta dæmi um stóra vinnustaði í dag.   Er þetta kennt í skólakerfinu líka og látið viðgangast.  Af hverju þurftu þau að mynda hópa.?  Ég er ekki viss um að skólayfirvöld geri sér alltaf grein fyrir afleiðingum verka sinna.  Þeir hafa valdið til að  ákveða, svona skal það vera, en ekki öðruvísi. Eflaust eru þeir með eitthvað kerfi í gangi sem gengur upp í kolli þeirra, það það er ekki nóg. Við skulum kalla þetta mistök.  Vonandi verða þau lagfærð strax..
mbl.is Keyrði 70 km í FB frekar en halda áfram námi í FSu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmætur poki..

Já það er svona að eiga mikið að peningum.  Fólk sem veður í seðlum missir skinið á eignir og finnst örugglega  ekkert öðruvísi að burðast með peningapoka en  venjulegum launþega sem burðast með skó í poka.  Staðreyndin virðist vera sú að þeir sem eru með háar upphæðir á mánuði í laun eyða þeim jafnharðan. Þeir sem minna hafa gæta sín.. Margur verður að aurum api..
mbl.is Gleymdi einni og hálfri milljón á klósettinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband