18.1.2009 | 15:48
Mistök!
Hvurslags mistök eru þetta á birtingu fréttar,
kannski að fall sé farar heill. Vonandi gengur Sigmundi vel að byggja upp trúverðugt starf hjá framsóknarmönnum, og halda í lýðræðið...
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við óskum honum bara til hamingju og sjáum hvað hann getur gert ekki ætla ég nú að fyrirfram dæma það.
Ljós til þín Sigga mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.1.2009 kl. 16:18
Þetta klúður er í stíl við flokkinn.
Nú er kominn Nýr Framsóknarflokkur og nú vantar bara nýa kjósendur.
Heidi Strand, 18.1.2009 kl. 16:30
Sigríður, ég held í alvöru að það yrði farsælla að leggja flokkinn niður. Bjarni Harðarson er með flokk í uppsiglingu og gæti best trúað að það yrði vænlegra dæmi.
Baldur Hermannsson, 18.1.2009 kl. 18:42
Svona getur þetta verið,tjái mig lítið um þetta,eins og venjulega er ég frekar fámál þegar pólutík en annars vegar
Guðný Einarsdóttir, 18.1.2009 kl. 19:25
Mikið gat maður nú vorkennt manninum á meðan á þessu stóð!
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 21:29
Hann tók þessu furðu vel samt.
Baldur Hermannsson, 18.1.2009 kl. 21:31
Enda 10 mínútna frægð betri en ekkert í stjórnmálaheiminum. Þeir fá meðaumkunarfylgi út á þetta. Þetta var bara PR plott.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:08
Einar sér í gegnum svikaplottin.
Baldur Hermannsson, 18.1.2009 kl. 22:23
Enda skyggn með afbrigðum með og án gleraugna.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:35
Er mætt á skyggnilýsingarfundinn hehe.. Eitthvað fyrir mig strákar.. Eru þið ekki með einhverja sýn á framtíðina.... lát heyra.. Ég var búin að sjá einhvern lykilmann koma til sögunar um miðjan janúar, mann sem jöfnunar og festu. Kannski er þetta hann.
Takk fyrir kvittið og innlitið karlar og konur mínar.
Eigið ljúfa viku framundan Elskurnar..
Sigríður B Svavarsdóttir, 18.1.2009 kl. 22:52
Nú hvað er þetta, ertu þá spákona? Eða kannski norn????
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 00:03
Þetta var skammarlega hallærislegt!!! Takk fyrir síðast Sigga mín
Huld S. Ringsted, 19.1.2009 kl. 07:52
Baldur... örugglega NORN...ertu nokkuð með logandi í bálkesti??? hehe
Takk sömuleiðis Huld mín..
Sigríður B Svavarsdóttir, 19.1.2009 kl. 09:03
Sa þetta einmitt á netinu áðan, neiðarlegt. Knus til þín Sigga min
Kristín Gunnarsdóttir, 19.1.2009 kl. 10:43
Sigga, geturðu þá ekki galdrað Framsókn út úr kortinu? Svo þarf ég endilega að panta hjá þér hugnæma strauma fyrir landsfund íhaldsins
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 10:50
Baldur: Nei það geri ég ekki, það þarf miðjuflokk með heilbrigðum hugsunum. Vonandi getur Sigmundur byggt upp ný og fersk gildi bæði án aðildar ESB, græðisvæðingar og valdaníðslu, eins og flokkurinn var því miður komin í á tímabili einkavæðingar og einkavina.. Ég vil sjá frjálst og óháð afl án spillingar.
Sjálfsstæðismenn mega vara sig, fólkið í landinu vill ekki meira af spillingu, og eiginhagsmunapólitík. Fólkið mun velja sér fólk en ekki endilega flokka, þess vegna er gott að sjá nýtt fólk í forustu, fólk sem er sjálfstætt og fylgið sér. Mér líst þess vegna vel að Sigmund. Ég tek því fram að ég hef ekki kosið framsókn hingað til en nú verð ég forvitin, og mun fylgjast með framvindu mála.
Gangi þér vel á fundi sjálfsstæðismanna, vonandi ákveða þeir líka að skipta um forustufólk og velja sér nýtt blóð og nýja sýn til framtíðar. Einkavæðingunni hent út af borðinu.
Sigríður B Svavarsdóttir, 19.1.2009 kl. 11:11
Ég efast um að íhaldið skipti um hesta í miðri á. Íhaldið er svo miklu stærra apparat en litla framsókn. Skriðþunginn er svo miklu meiri. Það þarf lengri aðdraganda.
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 11:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.