Er hægt að toppa gærdaginn?

Ég fór niður í Eflingu í morgun, þó það sé ekki frásögu færandi því þangað hef ég farið sl 9 mánuði... heila meðganga takk fyrir takk. Ég heillaðist af útsýninu sem ég fékk á leið minni því hér er allt hvítt af snjó, því í gær snjóaði allan daginn sannkölluðum jólasnjó í logni. Snjó sem er léttur en samt þekjandi.  Öll tré í bænum voru hrímhvít alveg frá toppi til róta.. Þvílík sjón, ég hef aldrei séð aðra eins fegurð.  Nú hikaði ég ekki við að taka  myndavélina aftur með í göngutúrinn.  Það sást í lit á jólatrjánum sjálfum, en öll önnur tré eru hvít. 

 

DSC01894

 

DSC01892
DSC01931
DSC01935
Einhvernvegin tókst mér að festa myndirnar saman , en það á ekki að skipta neinu máli fyrir áhorfendur.
Njótið með mér smá broti af sýn minni í dag, sannkölluð  listaverk náttúrunnar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er bara yndislegt Sigga mín
ljós yfir til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.1.2009 kl. 17:08

2 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Takk fyrir kvittið Elskuleg.   Það toppar engin dagur daginn í dag hér á Akureyri í fegurð, ég hef aldrei heillast eins af nokkurri fegurð.  Það er ekkert vit í að reyna að tjá þetta í gegnum myndir, en

Sigríður B Svavarsdóttir, 16.1.2009 kl. 17:15

3 identicon

Sæl Sigríður, já núna minnir þetta einn meira á þá gömlu og góðu snjódaga.  Flottar myndir og toppa gærdaginn.  Takk fyrir innlitið hjá mér.  Kveðja.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 18:15

4 identicon

Flottar myndirna hjá þér ,takk fyrir það,Sigga mín .

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 18:23

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Yndislega fallegar myndir, æi hvað ég mundi vilja vera í þessu umhverfi í nokkra daga. Kærleikur til þín Sigga min

Kristín Gunnarsdóttir, 16.1.2009 kl. 18:48

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Æðislegar myndir Sigga. Þær minna mig á Alaska árin mín en þar snjóaði oftast í logni.

Valdimar Samúelsson, 16.1.2009 kl. 21:50

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sigga mín má til með að segja þér.
Fyrir 15 árum þá upplifði ég svona fullkomnun í náttúrunni, ég var í bílnum og allt í einu sá ég þessa fullkomnun.
Var búin að aka þessa leið í 27 ár.
Mín skoðun var að ég var búin að finna mig í lífinu, sátt við það sem ég var að gera, síðan hefur allt opnast meir og meir.
Ljós í þína helgi Sigga mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2009 kl. 09:28

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndilegar myndir !!!!

Takk fyrir upplifun.

Kærleiksknús

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.1.2009 kl. 17:15

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég var líka dáleidd af fegurð náttúrunnar þennan dag, yndislegar myndir hjá þér Sigga mín. Sjáumst við ekki á hittingnum á morgun?

Huld S. Ringsted, 17.1.2009 kl. 18:51

10 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Takk fyrir innlitið og kvittið Elskurnar.. Jú Huld mín...ég stefni á gilið á morgun, nú verð ég lögleg ekki satt?...Sjáumst

Sigríður B Svavarsdóttir, 17.1.2009 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband