Fækkum milliliðum og skiptum jafnt!

Það er komin tími til að minka bilið á milli ríkra og fátækra á Íslandi, okkar kæra landi sem gefur af sér mikinn auð, en kerfið kemur í veg fyrir að allir njóti Það er langt í frá að þjóðin græði á þessu stóra bili því auðurinn skilar sér ekki í ríkissjóð, þetta stóra bil tekna er því miður feikað með arðgreiðslum, undanskotum.

Fátækir er látnir standa undir launum stjórnarmanna og yfirbyggingu lífeyrissjóða, sem nú telja í tugum í okkar litla landi. Tala nú ekki um verkalýðsfélögin sem eru víst komin á þriðjahundrað. Hvað á þetta að þýða. Þetta sama fólk á að standa undir heilbrigðiskerfinu og skólunum sem ma. skila menntun út í samfélagið sem er síðan ekki metin að jöfnum verðleikum. Viðskiptadeildin og lögfræðideildin virðast vera frjáls á sínum tímalaunum. Meira að segja táknmálstúlkar fara fram á háar tölur. Dýralæknar selja sína vinnu ekki ódýrt, en voru samt í verkfalli. Hvernig á láglaunafólk að geta borgað brúsann þegar það er td. að borga af húsnæði sínu lágmark 150 til 200 þúsund á mánuði og fær um og undir 200 þús. útborgað ?

Framleiðnistörfin voru flutt erlendis og lifa þar góðu lífi. Þjónustustörfin hér innanlands er reynt að dekka með útlendingum helst málausum og afgreiðslustörfin ungum börnum á lágum launum . Hvernig á þetta að fara saman? Tökum okkur til og breytum þessu í eittskipti fyrir öll. Leggjum af afæturnar til dæmis með því að sameina marga tugi lífeyrissjóða höfum þá tvo sterka Eins með stéttarfélögin höfum þau tvö. Með þessu verður hægt að hækka laun á fagfólk og jafna laun á fólk sem starfar í þjónustu geiranum hvort sem það er á sjúkrahúsum, dvalarheimilum, barnaheimilum og svo framvegis. Hættum þessu bulli og greiðum eldrafólki það sem þau hafa safnað í sjóði sina og sjáum fólk fá að lifa með reisn.

Að lokum Það er haft hátt þessa dagana þegar það er verið að tala um fjölda aldraða sem eru að koma inn með þunga og á að fá greiddan lífeyri sinn. Þetta á ekki að koma neinum á óvart því allt þetta fólk er búið að borga í lífeyrissjóðinn plús það var tekin skattur af innlögninni þeirra fram að 1998 og aftur látið greiða fullan skatt í dag. Það virðist eins og engin hafa tekið eftir inngreiðslunum á meðan peningurinn rann jafn og þétt í sjóðina. Var kannski verið að blekkja fólk með því að fjölga sjóðunum og bæta við stjórnendum og starfsfólki í stað þess að gera ráð fyrir endurgreiðslu til eigandasjóðanna?


Einföldum kerfið, tökum flækjur burt, inn með réttlætið.

Hvernig stendur á því að í öðru orðinu er talað um hagræði og hinu um bruðl?

Það er verið að tala um launahækkanir þessa dagana  í prósentu eins og fyrridaginn á sama tíma er verið að tala um launamun kynjanna sem að sjálfsögðu breikkar við hverja prósentu hækkun og bilið á milli hæðst og lægst launuðu einstaklinga þessa lands.

Maður spyr sig er ekki komin tími til að koma sér upp úr þessum hugsunarhætti og hækka alla um sömu krónutölu eins og var gert hér fyrir nokkrum áratugum eða áður en prósentutalan var sett á og launamismunurinn varð svona mikill eins og raun raunin er í dag.  Ef krónutalan er tekin upp leiðréttast launakjörin smásaman. Það getur ekki verið meira verðbólgu hvetjandi en er í dag.

Miðað við forsendur launahækkana sem seðlabankastjóri lét frá sér í fjölmiðlum í gær um hækkun launa um 2.5 %. á línuna. Það er eingin hækkun fyrir þá lægst launuðu. Það sér hver maður,  þeir sem hafa 200 þúsund krónur í laun á mánuði  fá 5000 kr. hækkun á meðan sá sem hefur  miljón fær. 25 þúsund. Er ekki komin tími til að jafna svolítið launatölur landans?. Draga til baka 250 þúsund kr. hækkunina sem varð ofan á í sumar á ofurfólkið og búa til sátt.

Ég sá launatöflu ASÍ fyrir nokkrum árum og blöskraði. Ég ætla ekki að efa vinnuna undanfarinna ára við að útfæra herlegheitin. Þar ber að líta þykka bók sem inniheldur þrepaskiptingu, flokkaskiptingu og bara nefndu það og örfáar krónu hækkanir á milli þrepa.

Blessað fólkið sem  er að vinna þessa vinnu fær örugglega hærri laun en  hæðstu töluna sem stendur í þessari bók.

Einföldum kerfið, tökum flækjur burt, inn með réttlætið.. Hækkum launin á línuna um 20000 kr. á mánuði og einföldum kerfið.

 


EFTIR ÞVÍ SEM ÞJÓÐIN ER RÍKARI VERÐUR HÚN FÁTÆKARI!

Hugleiðin dagsins.


EFTIR ÞVÍ SEM ÞJÓÐIN ER RÍKARI VERÐUR HÚN FÁTÆKARI!

Þessi setning kom til mín í morgun þegar ég fletti blöðum dagsins. Það er sorglegt að lita til baka og sjá uppbyggingu forfeðrana vanvirtar og gleymdar í samfélagi sem telur sig geta gert allt. Forfeðurnir höfðu hvorki tæki né tól til að vinna að uppbyggingu eins og gert er í dag. Þá voru notaðar skóflur við vegagerð og alla uppbyggingu þess tíma. Þá var það hugsjónarsemi og orka mannslíkamans aflið í allri vinnu úti sem innandyra. Það var unnið frá morgni til kvölds og alltaf til framtíðar. Allt sem var unnið varð að dýrmæti í höndum þessa fólks. Allur fatnaður allur matur fór í gegnum hendur heimilanna.
Allir sjóðir urðu til vegna tilstilli þessa fólks hvort sem það var sparisjóðir eða samvinnufélög. Þetta fólk var að hugsa til framíðar með sínum dugnaði og atorku. Á örstuttum tíma náði lærða fólkið völdum og komst auðveldlega yfir fjármuni þeirra og veikti um leið uppbygginguna sem átti að standa til framtíðar. Þeim tókst að byggja upp vegi,heilsugæslu og sjúkrahús hringinn í kringum landið, pósthús og alla þjónustu sem þurfti. Okkar þjóð í dag tekst ekki að halda þeim rekstri við á nokkurn hátt því þeir hugsa bara um hagræðingu sem skilar eingöngu af sér fátækt. Mín skoðun er sú að eftir því sem fólkið lærir meira verður það fátækara af því veraldlega og einhæfara.


Páskakveðja!

 Er  ferlega löt við að vera hér inni síðan faceið kom. Allt of löt........

 Óska öllum vinum mínum og landsmönnum um allt land Gleðilegra páska. 


Fann þessa spá í fórum mínum hún varð til 2010...

Þessi spá mín er en í gildi, því set ég hana hér.. 

Landið verður lengi að hrista af sér óværuna, sem hefur safnast upp á mörgum árum og magnaðist um of á þessu ári.Fyrirgefning er þörf í brjóstum landans til ráðamanna sem fóru fram úr sér í hugsunum og gjörðum.  Þeir eru ekki öfundsverðir, en þeir tóku virkan þátt í græðginni og hlustuðu ekki á þá sem mótmæltu örlögum þeirra nú.   Þeir sem minna hafa á milli handa  eru ríkir í dag.  Þeir urðu í einum vettvangi  öfundsverðir því þeir sem fóru fram úr sér fjárhaldslega  með hroka , gangvart samferðamönnum sínum, öfunda í dag þá  sem héldu ró sinni og eiga ríkt hjarta, og stöðuleika til framtíðar. Þeir nýríku sem halda sínum veraldlegu eignum  fá ekki frið í hjarta sínu, þeim mun líða illa.  Það verða nýir aðilar  sem taka við stjórninni  á öllum sviðum á ögurstundu.  þeir eru reynslulausir, en með ákveðnar hugmyndir í farteskinu.  Þeir skapa óróleika sem er ekki  góð orka til að byrja með. Mikið óöryggi mun ná yfirhöndinni, og verður erfitt að snúa við landslaginu vegna reiði og öfundar ákveðinna afla.  Það myndast  vond orka.Upp úr standa  þeir sem hafa  öryggið og kunna að nýta það sem náttúran gefur,  þeim sem eru tengdir jörðinni, og eru staðfastir í sinni trú á hið góða. 2010:  Verður ár nýrra framfara og vakningar til lífsins. Það mun myndast ný orka sem gerir það að verkum að  það eiga eftir að spretta upp mörg ný störf  á gamalli þekkingu forfeðra okkar,  orka sem  gengin verður til  góðs.  Það er  mikið til af lærðu fólki sem virkjar sig  í hin ólíklegustu sprotastörf.  Fyrirtækin verða smá en mörg, og hráefnin tekin úr íslenskri náttúru.  Eftir 10 ár verður litið til Íslendinga með virðingu, ekki síst sem góða fyrirmynd.  Ný kynslóð  Íslendinga mun vanda sig og ekki síst hlusta á þá sem eru komnir  efri ár. Sú þekking mun ná fram að ganga með lagni til að byrja með og síðan sem djúp vitund og virðing fyrir gjöfum guðs þegar fram sækir. Það verður úrelt að svífa á vegi græðgi  og jarðteningaleysis . Þau öfl sem hafa ráðið ferðinni, láta sig hverfa á vit  fortíðar og spóla  áfram, en komast ekkert  fyrir jarðtengdu fólki sem gerir sér það ljóst, að allir jarðarbúar fara með sína reynslu í hjartanu (skjóðunni) hvort sem hún er góð eða slæm, yfir í eilífðina sjálfa. Þar uppskerum við okkur sjálf.  2010 byrjar á nettum nótum. Allir verða feimnir við næsta dag því óttinn er í nálægð og reynsla fyrri ára.  En það mun koma fram maður réttvísinnar  um miðjan janúar og gefa kost á sér í lykilstöðu. Hann mun sanna sig og gefa fólki traust og virðuleika. Honum er ljóst að það þarf að taka til á öllum stöðum til að umbreyta orkunni  og jafna henni.  Hann um taka til eins og sagt er með stóru hjarta, og raunsærri trú á líf og land. Þegar haustar mun sjást árangur þessara verka, og sól mun skína bjartar í  hjörtum landans. Þessi einstaklingur lætur ekkert á sig fá þegar fortölur þeirra sem mistókst,  láta í sér heyra.  Það fer nefnilega þannig að það minkar bilið á milli ríkra og fátæktar í veraldlegum gæðum, og jöfnuður mun ríkja til framtíðar. Þetta þola ekki allir, því margir eru með bundið fyrir bæði augu, og sjá bara sjálfan sig og græðgina. Því hærra sem þeir hafa, því mun framtíð þeirra versna. 2010 mun ríkja mikið ljós yfir landinu, því orkan verður í jafnvægi.  Það munu opnast möguleikar á fleiri  búum á landsbyggðinni og lífræn ræktun  verður ofan á til framtíðar litið.  Ísland verður matarkista Evrópu  og fyrirmynd í ræktun. Heilsufar mun verða betra og vakning miklu betri á öllum sviðum.Matvælaiðnaður verður allur endurskoðaður með hollustu í fyrirrúmi.  Lyf og læknisfræðin endurskoðuð með  háþróun og metnað á flestum sviðum. Ferðaþjónusta og heilsusetur fara saman um allt land.  Lög og reglur  um hugræna orku og lækningar verða endurskoðaðar, og gefur það góða raun. Við verðum meira meðvituð um gæftir landsins okkar og setjum heilsu og hollustu í fyrirrúm.  Álbræðslur og þess konar verksmiðjur   verða á undan haldi, en settar upp nýjar  verksmiðjur sem eiga að vinna úr því hráefni sem þegar er fyrir hér á landi, svo sem ál,  landbúnaðarvöru allskonar, fiski  og önnur  vinnsla úr  lífrænu hráefni. Þessi vinnsla  mun breyta innsýn fólks á nýtingu hráefna  sem hefur verið skolað fyrir borð á tímum græðginnar til margra ára.  Vakning nýunga sem blasir við öllum en fáir sjá, verður sýnileg og virkt af fólkinu í landinu.  Fólk verður meðvitað um að það smáa  gefur gildin, en ekki hið stóra og grimma.Jarðir sem auðmenn keyptu á sínum tíma fara aftur í nýtingu.  Þær hafa stíflað orkuflæði landsbyggðar vegna hugsana sem settar voru þar niður. Uppskeran var græðgi og vanhugsun eiganda.  Þessi orka þeirra truflaði  orkuflæðið  í  sveitum landsins  og hafa sett neikvæðan stimpil á ákveðið  flæði  í lífi bænda.Þessi orka mun breytast og  færri bændur þurfa á því að halda að vinna úti frá með búunum. Skuldsettur bóndi á erfitt með að halda því sem hann er skráður fyrir, en bændur mynda skjaldborg um þá sem erfiðast eiga.  Þeir munu þurfa að selja tæki og tól sem aðrir geta nýtt sér á nýbílunum.  Fiskiðnaðurinn verður að koma  allur að landi, sem eign þjóðarinnar. Um þetta verður karpað lengi vel, en ofan á verður að  þjóðin á fiskimiðinn. Það endar á því að kvótanum verður úthlutað á sjávarsíðuna í  kringum landið  og ró kemst á, en þetta gerist ekki að fullu fyrr en 2012.  Landsbyggðin mun vaxa í augum þeirra sem hafa formælt henni á undan förnum árum, enda hafa þeir ekkert annað til að lifa á. Fyrirgefningin og sættir á öllum vígstöðum verður að ganga til að vel fari. Lesandi góður, það gera allir mistök, þú líka.  Fyrirgefðu sjálfum þér öll  mistök sem þú gerðir meðvitað og ómeðvitað, og fyrirgefðu þeim sem voru alltaf að gera sitt besta að eigin sögn.  Fyrirgefðu öllum í hjarta þínu  inn á við og út á við. Vertu ljósið í lífi þínu, játaður að við erum öll mannleg, ríkisstjórnin líka, þó hún hafi siglt skútunni í strand.  Njótum nýs upphafs, skolum reiðinni fyrir borð. Þá mun okkur farnast vel.

Mjög langt síða ég hef komið við á þessari síðu

Mátti til með að skrifa nokkur orð til að vita hvort síðan virki en þá.. Knús og kærleikur sendur út í daginn á fallegum haustdegi..

Vestfirðingar !

 



Laugardaginn 9. október 2010, kl. 17 °° verður kynning á samtökunum Landsbyggðin lifi – LBL, í fundarsal Þróunarseturs Vestfjarða að Árnagötu 2-4, Ísafirði.

Framsaga:
• Ragnar Stefánsson, varaformaður samtakanna LBL kynnir þau og ræðir um mikilvægi samtakanna í kjölfar kreppu
• Á fundinn koma líka eftirtaldir stjórnarmenn í LBL á fundinn: Stefanía Gísladóttir, Kópaskeri, Sigríður Svavarsdóttir, Akureyri og Guðjón Dalkvist Gunnarsson, Reykhólum. Munu þau sitja fyrir svörum ásamt Ragnari um starfsemina vítt og breitt um landið
• Shiran Þórisson, framkvæmdarstjóri Vaxtarsamnings Vestfjarða segir frá kjarnaverkefnum á svæðinu.

Kíkið við og takið þátt í umræðu um framtíð byggðarinnar, um tækifæri sem geta skapast á þessum umbrotatímum og um hættur sem geta steðjað að.
Allir hjartanlega velkomnir!


Landsbyggðin lifi – L.B.L, er grasrótarhreyfing sem vill örva og efla byggð um land allt.
Áhersla er lögð á að tengja fólk saman og skapa samstarfsvettvang fyrir einstaklinga og hverskonar áhugamannafélög sem vilja styrkja og efla heimabyggð sína. Þannig vill L.B.L. stuðla að eflingu byggða, bæði efnahags-, menningarlega og hvað varðar almenna þjónustu.. Í samtökunum eru aðildarfélög víða um land. L.B.L. býður til aðildar og samstarfs einstaklinga, staðbundin félög og heildarsamtök sem vinna í sama anda. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi samtakanna er bent á heimasíðu þeirra á slóðinni: www.landlif.is, og sérstaklega á að koma á fundinn á laugardaginn 9. október.

Landsbyggðin lifi í samvinnu við nokkra heimamenn.


Áhrif sameiningar um allt land.

Eru þetta ekki sveitafélögin sem er búið að sameina sem eru skuldsettust? Mér sýnist það nú vera. Var það ekki í sameiningarpakkanum forðum sem skuldsetning sveitafélagana fór af stað? Voru ekki loforðin hjá ríkisstjórninni að skaffa peninga sem áttu  að fara í mannvirki á svæðunum og önnur mannvirki sett í eyði sem voru nothæf áður? Sveitafélögin voru sett á kaf í skuldir af ríkinu. Ef ég man rétt þá borgaði ríkið 40% og skuldsetti sveitafélögin 60% um leið.

ja svei.


mbl.is Alvarleg staða sveitarfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit einhver ??

Hvernig það sé með Bílasamninga í erlendri minnt? Gildir það sama með þá og erlendu lánin?
mbl.is Ekki heimilt að gengistryggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar hendur vinna létt verk.

Frábærar fréttir.. Gangi ykkur vel duglega fólk. Vonandi fer þetta allt á besta veg. Þetta verður mikil saga  sem skráð verður í sögur 21 aldarinnar og gefur þeim sem á eftir koma mikið gildi og fróðleik.
mbl.is Einn kom með veghefil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband