Tímabundið????

Hún er að axla ábyrgð "tímabundið"... ég sé ekki betur.. það er ekki nóg að mínu mati.. Það á að  redda góðri sveitastjórnarkosningu á auðveldan hátt fyrir sjálfstæðismenn og koma svo inn aftur.. það er ekki að axla ábyrgð það er sýndarmennska. Hún á að hætta alfarið á þingi ásamt mörgum öðrum sem halda titli sínum áfram hjá stjórnmálaflokkunum.
mbl.is Þorgerður stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært..

Þið eruð hugsandi fólk sem varið er í.  Mikið er ég glöð með stofnum þessa félags og vona svo sannarlega  ég að það flykkist um ykkur meiri hluti þjóðarinnar..


mbl.is Stofna félag gegn ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár kæru landsmenn!

Guð gefi öllum gæfuríkt ár og farsæld  í fjármálum sem heilsu. Verum jákvæð sem þjóð þá komumst við lengra og öllum  líður betur.

Þakka liðin ár og reynslu þá sem þau gáfu mér. Lifum í gleði.


Gleðilega hátíð kæru vinir og landsmenn allir!

Ég óska öllum vinum mínum gleðilegrar hátíðar og ósk um gott og farsælt komandi ár. Hafið það sem allra best um hátíðina..

Eru sem sagt ofurlaun í gangi en þá?

eða voru hundruð manna að vinna við verkefnið??
mbl.is 319 milljóna kostnaður við skilanefndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta skilar sér ekki milliliðalaust í kassann.

það skilar sér nú ekki mikið af þessari prósentu inn í ríkiskassann því fólk fer að brugga í stórum stíl.  Fólk sem drekkur og getur ekki minkað það fer í það en aðrir minka drykkjuna eða hætta alveg.  Peningurinn skilar sér inn í kassann með sektum fyrir ólöglega starfssemi, og bætist um leið á álag  lögreglunnar sem þarf að fjölga í kjölfarið en er verið að skera niður hægt og bítandi þessa dagana.

þetta er öfugþróun því miður.


mbl.is Áfengisgjaldið hækkar um 42% á einu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En eitt nafnið.

Hvað skildi þetta nýja nafn þýða á Íslensku.

 Ég er búin að eiga sama viðskipta númerið lengi en þetta er fjórða nafnið  á bankanum ef ég tel rétt. Búnaðarbankinn, KB Banki, Kaupþing og nú Arion-banki .. ekki einu sinni Íslenskt nafn. Þetta er ótrúlegt en satt.

Nafnabreytingar kosta mikla peninga  sem að sjálfsögðu verður tekið af viðskiptavinum í gegnum vexti.


mbl.is Kaupþing verður Arion banki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki hissa.

Ég er nú ekkert hissa á því þó fólk láti ekki fífla sig meira í fjármálum. Er ekki komin tími til að við stöndum saman sem þjóð og horfum á dæmið sem við erum í raunsæisaugum og reynum að spila sameinginlega úr því sem við stöndum frammi fyrir úr því sem komið er. Ég held að ekkert geti versnað úr þessu, og muni lagast þegar gjaldeyririnn fyrir útflutninginn skilar sér heim. Ég vil fá  þjóðstjórn svo allt karp og barnalegir frasar fjúki burt af hinu háa alþingi sem er ansi lágt í hjarta margra landa. Ég vil spillinguna burt af öllum vígstöðum og grasrótina inn. Það er framtíðin.
mbl.is 38,5% hafa afþakkað greiðslujöfnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgin ræður víða ríkjum!

Það er nú en verra ef satt reynist að veiran hafi orðið til á rannsóknarstofum erlendis og sleppt út þegar séð var að lyfið var tilbúið sem á að varna því að fólk veikist, með merkjum í til að merkja hellst í hvert mannsbarn svo hægt verið að greina fólkið frá gervitunglum..Vísindin eru sem sagt skaðvaldurinn frá A-Ö í þessu tilviki. Græðgin ræður víða ríkjum. Dýr leikur þetta.
mbl.is Svínaflensa stórgróðafyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þessa menn??

Af hverju er verið að senda þetta fólk úr landi,  flóttafólk sem á ekki griðarstað í sínu heimalandi á meðan glæpamenn frá öðrum löndum ganga hér lausir, brjótast inn og stela hægri vinstri fá að vera hér í friði?

 


mbl.is Mótmælt við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband