31.12.2008 | 15:12
Ég er sorgmædd.
Þetta finnst mér ganga yfir öll mörk siðmenningar. Nú styð ég ekki lengur mótmæli af neinu tagi. Ofbeldi og skemmdarverk hjálpar engum, skemmir bara fyrir orðspori þeirra sem valda því. Ég gerði ekkert af mér.. Kryddsíldin var samt tekin af mér.
Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þarna er bara skríll á ferð og þeir eiðileggja bara og skemma ,þarna hefði ekki átt að setja piparúða ,heldur kúahland úr haugsugu ,það hefði eingann meitt er kanski ekki gleymst ,það þarf að kenna þessum skríl mannasiði ,því ekki má flengja lengur ,hahahahaha.
Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:32
Ertu ekki örugglega að grínast? Sýnist þér einhver vera á leiðinni að axla pólitíska ábyrgð á algjöru efnahagshruni?
Stundum þarf að gera fleira en gott þykir þegar koma þarf burt ríkisstjórn sem situr í andstöðu við þorra landsmanna.
Haukur Nikulásson, 31.12.2008 kl. 15:44
Kúahland meiðir örugglega ekki eins og piparúðinn, en það á heldur ekki að þurfa að nota það..
Haukur! þetta er ekki rétta leiðin, þú veist það. Ofbeldi er aldrei hægt að réttlæta sama undir hvaða kringum stæðum það er. Við þurfum nýtt fólk á þing, það kjósum við, en ekki með ofbeldi. Ég er ekki að grínast þegar það er verið að skemma eigu þjóðarinnar og ímynd okkar út á við. Notum rök og skinsemi.
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.12.2008 kl. 15:56
Ps: Haukur! hvenær hefur ríkisstjórn landsins ekki setið andstöðu landsmanna.?? ég held að það hafi alltaf verið og einmitt á þeim tímum þegar framsókn og sjálfstæðisflokkurinn kom okkur inní EES sem meiri hluti landsmanna hefði aldrei samþykkt ef við hefðum verið spurð, enda situm við í súpu þeirra. Ríkisstjórn þeirra tíma treysti á lög EES og setti eingin lög yfir útrásina.
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.12.2008 kl. 16:02
Jamm Hver er svo að skemma eigur þjóðarinnar skrýllinn eða stjórnin held að það sé alveg á hreinu hver er þar að verki þó ég sé ekki að réttlæta svona aðgerðir þá var aðeins spurning um hvenær svonalagað mundi gerast það vita allir
Gylfi Björgvinsson, 31.12.2008 kl. 16:02
Sigga mín það var Jón Baldvin Hannibalsson sem samdi um EES
Gylfi Björgvinsson, 31.12.2008 kl. 16:04
Hann hamraði á því það er rétt, og hefur kannski haft það í gegn á þeim óvinsælu tímum,en varð ekki samfylkingin til upp úr þeim samningum. Framsókn og sjálfstæðismenn kláruðu dæmið en gleymdu að lesa sig til. það var kannski þannig en það er búið því miður, en við lærum ekkert af hvorki því né öðru, því áfram skal haldið og næst verður tekið af okkur sjálfstæðið með því að ganga inn í ESB ef þeir fá að ráða. Þetta er allt ein sorg sem við sitjum í því miður, en ofbeldi hjálpar okkur ekki það er alveg víst frændi minn..
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.12.2008 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.