6.6.2009 | 20:01
Mér er spurn.
Er þetta eina leiðin sem þið sáuð færa áður en þið sprengduð fyrri ríkisstjórn samfylkingarfólk?
Hvar eru stóru orðinn sem dundu landsmönnum á meðan þið voruð í stjórnarandstöðunni vinstri grænir? Þá átti ekki að borga þetta eða hitt.
Er stjórnarandstæðan eingöngu til, til að vera á móti sama í hvað fokk það er? Er ekkert að marka það sem þið segið, hvorki í stjórn eða stjórnarandstöðu.
Mér sýnist sem áhorfanda að þetta sé sami leikurinn og í fyrri stjórnum, málin afgreidd á bak við tjöldin eins og oftast áður undir harðri gagnrýni stjórnarandstöðu. Því ekki að vinna saman og finna viðunandi lausn sem allir geta sætt sig við, í stað þessa yfirgangs og vanvirðu til landans sem veit ekki hvað er trúverðugt og hvað ekki. Leyndarmál eiga ekki að vera til inn á þingi að mínu mati.. Hvenær verður hægt að taka mark á kosnum fulltrúum þjóðarinnar?
Mér finnst þið ekki vera góð fyrirmynd fyrir fólkið í landinu því þið eruð verri en sandkassabörn sem ausa sandi óábyrgt á önnur börn. Þau eru óvitar og vita ekki hvað þau eru að gera, en þið eruð fullorðinn.
Erfitt að skrifa undir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er það slæm fyrirmynd að fara að landslögum?
Svala Jónsdóttir, 6.6.2009 kl. 20:42
Nei, Svala, en það er slæm fyrirmynd að lofa einu og gera svo þveröfugt þegar lygin hefur fleytt manni inn á þing.
Villi Asgeirsson, 6.6.2009 kl. 20:45
Nei það er ekki slæmt ef lögin eru í sátt við þjóðina.
Er það kannski í lögum að það sé leyfilegt að keyra mál í gegn án þess að um þau sé fjallað eins og hefur viðgengist undan farin ár á þingi?
Ef svo er þá má breyta þeim og það sem fyrst.
Sigríður B Svavarsdóttir, 6.6.2009 kl. 20:49
Ég spyr aftur eins og asni, gerði það áðan á síðunni hjá Halla, á ekki eftir að samþykkja þetta á þingi?
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2009 kl. 21:11
Jú Milla mín en er ekki meirihlutastjórn á þingi? Og það í miklum meirihluta? það hefði ég haldið. Það er lágmark að kynna það fyrir þjóðinni áður en svona er samþykkt.
Sjálfstæðismenn fóru eins að á meðan þeir höfðu meirihlutan. Ég treysti engum í þessum málum.
Við erum ekki virt sem þjóð.
Sigríður B Svavarsdóttir, 6.6.2009 kl. 21:23
Ég treysti engum af þessum mönnum/konum, vill fá utanþingsstjórn, burtu með þessa bjána alla saman.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2009 kl. 21:37
Já það væri eina vitið.
Sigríður B Svavarsdóttir, 6.6.2009 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.