31.5.2009 | 16:58
Græðgi.
Græðgin verður mörgum að falli en alltaf á kostnað þeirra sem hafa sparað og halda sér við jörðina. Það var ótrúlegt hversu lengi bullið gekk án þess að það yrði stoppað. Ráðamenn landsins voru með bundið fyrir bæði augu, því þeir settu lögin og tóku þátt í bullinu. Í hvaða skóla skildu þeir hafa lært að reikna?
Þetta fékk að viðgangast hjá stóru fyrirtækjunum á meðan almenningi var sagt að allt væri löglegt og undir ströngu eftirliti stofnana sem ríkið hélt uppi. Fólkinu í landinu sem vantaði fjármagn til að viðhalda húsum sínum án þess að rífa þau til grunna, þurfti að sína fram á endurgreiðslur í formi veða, en fyrirtækjunum í landinu var treyst fyrir lánum sem engin möguleiki var á að þau gætu staðið undir. Ráðamenn sem settu lögin og þeir sem tóku óábyrgar ákvarðanir í lánatöku hljóta að bera ábyrgðina en ekki almúinn. Voru það ekki framsókn og sjálfsstæðismenn sem tóku þessa útrásarákvörðun? Ójú, enda tala þeir digurbarkalega núna.
![]() |
Milljarða skuldir umfram eignir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta var hugmyndafræðin allt skyldi einkavætt allt skyldi skuldsett. Fisurinn í hafinu var "dautt fé" "án hirðis" það yrði að umbreyta honum í "lifandi fé".
Núna situr þjóðin uppi með afleiðingarnar!
Sigurður Þórðarson, 31.5.2009 kl. 17:46
Já rétt hjá þér nafni minn. Sorglegt en satt.
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.5.2009 kl. 17:56
Mér finnst það ekki rétt orðalag að stjórnmálamenn hafi verið með bundið fyrir augu. Mér finnst frekar að stjórnmálamenn hafi setið uppi í stúku og hvatt leikmenn til dáða. Leikreglurnar voru setta af þeim sem spiluðu. Stjórnmálamennirnir sem við kusum voru aðeins aumir áhorfendur.
Egill Jón Kristjánsson (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 17:57
Þarna ætla ég ekki að vera sammála þér Egill því þeir báru ábyrgð á þeim lögum og reglum sem leikmennirnir fóru eftir.
En það er rétt hjá þér þeir horfðu á leikinn og voru stoltir af verkum sínum fram á bjargbrúnina, en reyndu ekki að bjarga fallinu.
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.5.2009 kl. 19:05
Ég er sammála þinni greiningu Sirríður. Þvílíkur farsi!
Sigurður Þórðarson, 31.5.2009 kl. 19:45
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.5.2009 kl. 21:11
Er það eðlilegt að fá 3milljarða króna lán fyrir hlutabréfum í fyrirtæki lángjafans?
Þetta er græðgi og ættu báðir aðilar að tapa á þessum viðskiptum.
En eitt annað, ég man eftir því þegar hringt var í mig frá landsbankanum og spurt hvort ég vildi ekki gullkretidkort með 300.000 króna heimild og engu ársgjaldi, ég sagði allt í lagi og fékk það sent heim í pósti en ég notaði það ekki neitt en samt þetta sýnir hversu gráðugur bankinn var.
Hermann, 31.5.2009 kl. 21:11
Já þetta var kapphlaup við að koma fólki í sem mestar skuldir Hermann. Sumir bitu á agnið og aðrir ekki en þeir sem ekki bitu gjalda þess núna eins og allir sem í þessu landi búa.
Sigríður B Svavarsdóttir, 31.5.2009 kl. 21:34
Svo sannarlega er þetta rétt Sigga mín við erum að gjalda þess rétt eins og allir aðrir.
Kærleikskveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.6.2009 kl. 15:15
Já Milla mín þetta er sorglegt og sorglegast er að það ber eingin ábyrgð. Það virðist vera hægt að setja óábyrg lög, og teyma þjóðina á asnaeyrunum.
Sigríður B Svavarsdóttir, 1.6.2009 kl. 16:34
Verðum bara að standa í fæturna og takast á við þetta í sameiningu þó ill sé.
Knús til þín ljúfust
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.6.2009 kl. 16:39
Kannski vorum við vitlaus.En ég hélt að ég hefði ekki efni á að taka lán fyrir þessum hlutbéfum eða hvað sem þetta var
Knús til þín frænka mín 
Ólöf Karlsdóttir, 2.6.2009 kl. 00:46
Góð grein, mín kæra...
En vorum við öll hin ekki líka hálfblind og værukær...hvort sem við tókum þátt í kapphlaupinu að veisluborðinu eður ei...eða var það traustið sem við höfðum á ríki og stofnunum, sem blindaði okkur...að halda að góðærið væri komið til að vera og bráðum yrði það liðin tíð fyrir lítilmagnann að þurfa að berjast við borðið um afgangana...
Traustið blindaði okkur og afleiðingin nú sú, að við erum sem búfénaður nýrekin af fjalli, búin að tapa frelsi og góðum högum...
Stödd í almenningnum, bíðandi eftir í hvaða dilka við verðum dregin og undir ákvarðanatökun annara, hver afdrif okkar verða ?
josira, 2.6.2009 kl. 20:30
Jú þetta voru sniðugir og klárir kallar sem þóttust vita manna best hvað mætti gera hverju sinni ,enda hafa þeir allir dregið upp fyrir haus núna og þykjast alveg saklausir af þessu öllu ,sjálfsagt óttast þeir eins og pestina að einn góðan veðurdag verði grafið niður á þá ,en sjálfsagt verður öll þessi vitleysa látin niður falla og velt á alla þjóðina ,eins og ævinlega ,það er ansi súrt að þurfa að bera brigði annar að ósekju .
Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 21:35
Innlitskvitt!!!! Góða helgi Sigga mín
Guðný Einarsdóttir, 6.6.2009 kl. 04:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.