Það er mikið til í þessu.

 

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!!

(eða vorum við bara heppin??)

 

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

  

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

 

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

 

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við

hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

 

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

 

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

 

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu

í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

 

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni

án þess að nokkur létist.

 

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum

á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt

bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

 

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og

komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir

daginn.

 

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar

talstöðvar sem var flott að eiga!

 

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki

fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki

heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

 

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

 

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn

var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að

kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

 

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

 

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli

og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg

augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og

margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

 

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og

létum eins og heima hjá okkur.

 

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,

eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar

aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

 

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við

stjórnuðum okkur sjálf.

 

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.

Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

 

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

 

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í

Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

 

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

 

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í

því...

  

OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!

  

Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum

frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt

saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og

reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi

kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa

vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð samlíking hjá þér . En nú eru allir hræddir við allt , alt stórvarasamt  að umgangast og snerta .Var bara meira vandað til okkar þá eða er þetta bara ekki eins hættulegt og af er látið .Nú  er vandað til allra barna við uppeldið  ,og þau vermduð á öllum sviðum ,með fríki   hér og þar  ef og ef og ef ,en sem betur fer sakar það auðvitað ekki ,en einhvernvegin virðist þetta nútíma fólk hræðast mart og óttast ,og það sem er verra er það að nútíma fólk  er heilsuveilla  sem ætti að vera öfugt,og mætir seint og illa í vinnu  og alt eftir þessu . Hvað hefur unnist á   hjá okkur til bóta mannkyninu ?.Veit það hreinlega ekki,hahahahahhehehehe.

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 09:59

2 Smámynd: Guðrún Pálína Karlsdóttir

Veistu Sigga mín að lesa þetta þá sakna ég þennan tíma,ó það var svo gaman hehe.Það var ömurlegt að þurfa að fara inn,maður vildi bara vera úti.Þetta er mjög skemmtilegt umhugsunar efni hahahaha en við lifðum af og lifum enn húrra.Æ unga fólkið eru æði?Takk fyrir skemmtilegt lestraefni

Blíðu knús á þig Sigga mín

Guðrún Pálína Karlsdóttir, 19.4.2009 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband