10.4.2009 | 15:12
Sorgleg lestning.
Það er alveg öruggt að þessi leið er ekki sú rétta fyrir atkvæða smölun Þorgerður mín. Þú hamrar alltaf á hækkun skatta hjá öðrum flokkum, þú minnist ekki á ykkar skattahækkanir á lægst launuðustu þegna landsins í gegnum árin. Ég er ekkert hissa þú viljir ekki snúa þeirri þróun við. Mér sýnist einmitt hinir flokkarnir vilja jafna lífskjör þeirra sem hafa lagt tiltölulega mest til í ríkiskassann í gegnum árin. Komin tími fyrir réttlæti á öllum sviðum, og ekki síst að leiðrétta launabilið á milli ríkra og fátækra í fjármálunum. En það má minna á að þeir sem hafa á lítið milli handa, eru nægusamari og eiga "ríkara hjarta" en hinir sem göslast áfram á þráhyggjunni einni saman. Skoðaðu allt frá grunni og sýndu að þú ætlir að breyta um stefnu og fara að hugsa um alla þjóðina en ekki útvalda einstaklinga.
Hvítþvegin bleyjubörn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Huld S. Ringsted, 11.4.2009 kl. 17:07
Gleðilega páska "kæru" vinir mínir allir.
Hafið það gott um hátíðina..
Sigríður B Svavarsdóttir, 11.4.2009 kl. 17:51
Það er alveg rétt hjá þér að leiðrétta þurfi bil á milli ríkra og fátækra en við getum þó ekki fullyrt að hinir ríku séu betra fólk en þeir fátæku Sigríður mín. Ég þekki fjöldan allan af velstæðu fólki sem er mjög velviljað og með fallegt hjartalag.
Hilmar Gunnlaugsson, 11.4.2009 kl. 19:20
Gleðilega páska
Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 02:25
Sennilega er það ekki auðvelt fyrir fólk sem er með háar tekjur að setja sig í spor okkar hinna ,en samt ætti það að vera hægt ,því þetta stóra yfirgengilega brjálaða,óhugarlega launabil hjá landsmönnum er skuggalega mikið ,og ætti bara að vera hækt að skera aftan af því í samræmi við vinnuafköstin en ekki eftir græðisstefnunni .Skattahækkanir ættum við hvergi að sjá miða við þessari stöðu sem þjóðfélagið er nú í .Ráðamenn ættu bara að skammast sín fyrir grækði og yfirgang og óheiðaleka í tali ,ef þessi stefna sem hefur verið að undanförnu hér á landi ,þá er ég hræddur um að stoðir brotni og bönd slitni ,og þá dettum við en þá neðar í hruninu mikla ,því við erum ekki komin á botninn ennþá kíkjum á það.
Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 09:17
Takk fyrir innlitið kæru vinir.. Gleðilega hátíð.
Sigríður B Svavarsdóttir, 12.4.2009 kl. 10:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.