Færsluflokkur: Bloggar
8.9.2009 | 10:39
Já auðvitað!
Við eigum met í ýmsu íslendingar, skildum við geta slegið þetta met líka á heimsvísu?
Hvar skildi áherslan vera mest núna á menntun?
Skildi verknámið vera að fá byr undir báða vængi og viðskiptin og hagfræðin í lægð?
Er einhver sem getur frætt mig um þetta?
Vonandi verður lögð meiri áhersla á menntun sem gefur góð gildi í stað útreikninga á loftbólugræðgi:))
Ísland ver hlutfallslega mestu til menntamála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.8.2009 | 16:09
Sammála síðasta ræðu manni:)
Uppreisn gegn stimpilklukku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.8.2009 | 13:11
Hverjum er hægt að treysta.
Skuldar milljarða og eiginkona forstjórans í bankaráði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2009 | 12:27
Vonandi hamingja Húnvetningar!
Gamalt mátæki segir. Kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið, en vonandi er gott kjöt í súpunni í þetta skiptið sem ratar í munn Húnvetninga
Það sem ég óttaðist fyrst þegar ég heyrði að þetta stæði til er að landbúnaðurinn visni upp í nágrenni við gagnaverið.
Það er með þetta eins og margt annað í uppbyggingu nýrra tækifæra sem við verðum að vera á verði og sjá til þess að rannsóknir séu gerðar opinberar. Það yrði stórt slys ef annar mikilvægur atvinnuvegur legðist af fyrir vikið.
Ég vil ekki vera svartsýn á þetta en ég veit bara hvernig mér líður þar sem miklir geislar eru í gerndinni, ég verð hreinlega veik.
Það er komin tími til að Blanda skili rafmagni í heimabyggð.
Vonandi þarf ekkert að óttast.
Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2009 | 17:09
Á hverjum á að taka mark?
Af hverju gengu sjálfstæðismenn ekki frá þessum málum á meðan þeir voru við völd?
Að undan förnu hafa sjálfstæðismenn verið að gaspra um Icesave reikninginn hér og þar án þess að hafa gengið frá því hvernig ætti að borga skuldir óreiðumanna eins og Davíð orðaði það svo vel. Nú valta þeir yfir stjórnina með orðaflaum sem er með ólíkindum í stað þess að stjórnvöld vinni allt málið saman eins og menn. Stjórnarandstaðan og stjórnin eiga að vinna saman í stað þess að karpa endalaust. Það er mín skoðun að fyrri stjórnir framsóknar og sjálfstæðis eiga ófarir þjóðarinnar vegna órásíu hugsana sinna og stjórnlausrar einkavæðingu. Þeir gerðu lagaramman færan fyrir græðismenn..
Ekki setja þjóðina á hausinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.7.2009 | 09:00
Og þeir ganga lausir.
Þetta eru mennirnir sem var treyst fyrir bankanum! þetta eru mennirnir sem settu reglur í bönkunum sem giltu fyrir þá en ekki almenning! Þetta eru mennirnir sem en ganga lausir!
Þetta eru mennirnir sem blekktu! Mennirnir sem almenningur átti að líta upp til! þetta eru þeir sem lugu að þjóðinni með græðgirbros á vör.
22 fengu 23,5 milljarða að láni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2009 | 11:04
Blekkingar.
Minnisblað um milljarðatap FL Group vegna Sterling | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2009 | 11:53
Voru gæðin byggð á blekkingum?
Það versnar að búa í Kópavogi núna dag frá degi, minstakosti ytri myndin sýnir það.
Hvernig stendur á því að fólk í stjórnarstörfum "kosið af fólkinu" vogar sér að tefla djarft til að sína betri stöðu en raunin er?
Sá ágæti maður Gunnar I Birgisson er að reyna að leika sama leikinn og ríkisstjórnin gerði á bak við tjöldin og hélt að hann kæmist upp með það. Það er sýnilegt að margir stjórnarmenn hvort sem það var í sveitastjórnum eða í ríkisstjórnum hafa látið vaða þó samviskan segði annað.
"Góðæðrið"eins og það var kallað.. blekti margan manninn og lifði í allt of langan tíma. Virðingin fyrir lífeyrissjóðunum var orðin alllítil, því eins og ég hef áður sagt, þá varð sá sem tók þátt í útrásinni af aurum api og situr uppi með það.
Sárast er það fyrir saklaust fólk að það þurfi að borga skuldabrúsa þeirra sem eftirlitslaust gátu misnotað sparnaðarsjóði okkar.
Sakar Gunnar um blekkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.6.2009 | 11:52
Þar kom að því.
Já komin tími til.
Ég vil líka sjá seldar dýrar byggingar út um allan heim og taka frekar á leigu mátulegar íbúðir til að búa í og aðstöðu fyrir skrifstofu. Bara svipað og önnur lönd gera hér á landi. Íslendingar eru bara venjulegt fólk, ekkert frábrugðnara öðrum þjóðum og þarf ekki að lifa í snobb köstulum og á stöllum eins og þeir hafa gert undanfarin ár, og landinn skattpíndur til að borga.
Sendiherrum fækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.6.2009 | 11:56
Græðgin á sér eingin takmörk.
Það er alltaf að verða betur sýnilegt hvernig græðgiheimurinn óx áfram án takmarkana. Fleiri og fleiri einstaklingar flæddu inn í ógnina án hindrana og sitja svo í súpu þeirra sem vissu hvað þeir voru að gera, því græðgin vissi hvaða undankomuleið var fær fyrir þá sjálfa en ekki fyrir þolendur því þeir áttu að fara sem ver út úr viðskiptunum.
Það þarf að fá til landsins fleiri erlenda sérfræðinga á rannsóknarsviði til að grípa kónana sem steyptu okkur í fjármálunum, og flytja svo inn gáma til að hýsa þá jafnóðum sem teknir eru, því öll fangelsi landsins eru yfirfull af fólki í erfðri stöðu.
Hvaða rétt eiga bankastjórar fram yfir venjulegt fólk að taka lán í lífeyrisparaði á lægstu vöxtum??
Í lífeyri sem þegar er horfin í hítina??
Fékk 70 milljóna lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)