Vanvirða og hroki.

Af hverju er því  alltaf borið við að það þurfi að hagræða.  Hagræða hverju spyr ég? Ég held að mestu mistök sögunar hafi verið sameining borgarsjúkrahúss og landsspítalans á sínum tíma.  Það hefur kostað þjóðina mikið og endalaus blóð taka í kjölfarið. Ég sé ekki betur en sama vitleysan sé uppi núna, þar sem  á að leggja af Sólvang sem sjúkrastofnun sem hefur staðið sig vel í samkeppni við aðrar stofnanir.  Þar hefur verið frábær  þjónusta í gegnum árin sem má alveg vera þar áfram. Ég myndi kannski skilja þessa sameiningu ef nýja sjúkrahúsið væri komið í gagnið. 

Átti ekki annars að byggja það vegna þess að það vantaði fleiri innlagningar pláss? 

Átti kannski að byggja það af flottrassahætti?.  Nei því trúi ég ekki.

Ég bara skil ekki þessar sameiningar út um allt land og á höfuðborgarsvæðinu.  Hvernig gátu forfeður okkar haldið úti stofnunum í hverjum þéttbýliskjarna til margra ára, með miklu minni þjóðarveltu en nú:  Heimilislæknarnir gerðu aðgerðir á þessum stöðum stórar og smáar.  Nú má það ekki, það má ekki einu sinni fæðast barn á þessum litlu stöðum. 

Er ekki komið tími til að snúa  við vitleysu stjórnmálamanna og færa fólkinu aftur öryggið heim.. 


mbl.is Eins og maður hafi verið skotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sammála þér

Hólmdís Hjartardóttir, 8.1.2009 kl. 00:40

2 Smámynd:

Þetta eru sko orð að sönnu.

, 8.1.2009 kl. 09:52

3 identicon

Allt er þetta satt sem þú segir hér að ofan og ekki veitir af því að heilbrigðiskerfið verði í goðu lagi ,því að ekki minka veikindi og vandræði með allri þessari kreppu ,það eitt hlítur að reyna fólk mikið og margir sjálfsagt þola slíkt álag sjálfsagt ekki til lengdar on þá er einsgott að hjúkrunarstofnanir verði vel í stakk búnar að reyna að hressa upp á þá sem þola ekki ömurlegt álagið ,þetta er uggvænlegt.

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband