28.11.2008 | 00:03
Sælla er að gefa en þiggja.
Ég var svo heppinn að vera dregin út hjá Euro í gær og fékk vinning á tónleika hjá Ellen og KK annað kvöld í Hafnafirði. Tvo miða takk fyrir. Minn fyrrverandi var heppnari en ég í okkar búskapartíð hann vann nokkra smá vinninga, en þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ vinning. Skrítin tilfinning en gleði fylgdi henni. Það reyndist þrautin þyngri að fá einhvern til að fara á tónleikana, ég kemst engan vegin þar sem ég bý á Akureyri. Ég hringdi 7 símtöl áður en miðarnir gengu út. Hahah en tókst. Sælla er að gefa en þiggja, heyrðuð þið taktinn? Sælla er að gefa en þiggja.
Athugasemdir
Frábært að þú fékkst einhvern til að fara.
Hafðu það gott ljúfan
Anna Guðný , 28.11.2008 kl. 00:11
Hummm.... finnst eins og einhverjir hafi sagt sælla er að taka en borga.
Ætli það sé misminni hjá mér?
Létt bull inn í góðan dag
Guðrún Þorleifs, 28.11.2008 kl. 06:32
Sigga mín, gott að þú gast gefið miðana fyrst þú komst ekki sjálf. Eigðu góðan dag vinan
Kristín Gunnarsdóttir, 28.11.2008 kl. 10:01
Þetta er ákveðin fíling að gefa fíling sem fyllir sálu mans og veitir ákveðna vellíðan. Þetta verða örugglega góðir tónleikar Njóttu dagsins frænka
Gylfi Björgvinsson, 28.11.2008 kl. 14:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.