1.3.2009 | 21:36
Lækkun vaxta já takk!
Vonandi er það rétt. Enda komin tími til að sjá verkin tala. Undarlegast finnst mér þó hvernig þjóðin snýst til varnar öllu sem gert er. Um leið og óskir fólksins urðu að veruleika og fyrsti erlendi sérfræðingurinn kom til að vinna að viðsnúning í fjármálakerfinu hér heima, þá er það rifið niður alveg um leið. Við erum skrítin þjóð. Stöndum ekki með okkur einn einasta dag.
Vextir fara að lækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já elsku frænka það er svo sannarlega tími til kominn.Mest af launum mínum fara í lánin og vexti stærsti hlutinn.Svo það verður gleði dagur hjá okkur hér á skerinu þegar þau verða lækkuð.Og siggs mín sammála við erum svo sannarlega skrítin þjóð
Sigga mín hafa æðislega nótt Guð blessi þig mín kær
blíðlegt blíðu knús til þín
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 1.3.2009 kl. 22:40
Jú það er kominn tími til þó fyrr hefði verið ,því atvinnuhjólin er í hægagangi fyrir vikið og heimilin í landinu ansi mörg eru að kikna undan okrinu líka . En fólkið er hrætt við allar beitingar hverjar sem þær eru og bíst alltaf við sitthverju verra en það þó er ,sem er sjálfsagt skiljanlegt ,því víða eru ljót sár í hjörtum fólks vegna okurvaxta og glæpastefnu í bankageiranum .
Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 21:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.